fimmtudagur, desember 01, 2005

Jólin nálgast

Það er komin jólaskreitingasamkeppni upp hjá okkur í Origo (vinnan mín fyrir þá sem hafa verið með hausinn í sandinum). Við erum 3 í herbergi, og einn okkar er greinilega algjört jólabarn, því hann er trítilóður í jóladótinu. Við erum þegar komnir með jólatré með séríu, kúlum og öllum pakkanum. Svo er syngjandi ísbjörn (syngur "My Girl") og jólasveinahúfa fyrir þá sem það vilja hafa, sem og tvær litlar seríur sem setja á út í glugga. Úff. Og það er bara 1. des í dag. Ég játa samt að ég tek fullan þátt í þessari vitleysu, verandi jólabarn sjálfur!

Til að toppa daginn kom Júlía svo með jóladagatal með nammi í handa mér, sem mér finnst sérstaklega frábært því að ég hafði sagt henni í gær eða fyrradag að ég hefði aldrei fengið jóladagatal með nammi í, og hún hneykslaðist pínu á því. Hún hlustar sem sagt á mig? *mjög breitt bros*

Það er sem sagt komin 1. des, og núna má ég formlega byrja jólaskapið, þó svo að sjálfsögðu það hafi byrjað miklu fyrr. Gleðilega aðventu öll!!

Torfi

Engin ummæli: