Óska eftir skemmtilegu fólki á öllum aldri. Þarf að vera í góðu skapi, tilbúin í að spila Trivial Pursuit (hvaða útgáfu sem er) í dágóðan tíma, eða þangað til einhver stendur eftir sem sigurvegari. Þarf að vera orðin 3 ára, og helst ekki rúmfast. Má hafa litla almenna þekkingu (kæmi sér vel reyndar) og mikið keppnisskap. Æskilegt væri að fólkinu fyndust piparkökur og malt og appelsín gott. Áhugasamir hafið samband við Torfa í torfig@gmail.com eða í símanúmerið hans.Takk fyrir og góðar stundir.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli