
Það hefur löngum tíðkast að strengja nýársheit um áramót. Að lofa sjálfum sér öllu fögru og brjóta svo öll loforðin eitt af öðru yfir árið. Ég var að hugsa um að strengja engin heit, lofa engu fögru og gera engan samning við sjálfan mig. Sálfræðingar segja að það sé hvort eð er tilgangslaust, og brjóti mann bara niður þegar loforðin brotna. Hins vegar eru áramótin góður tími til að hugsa sinn gang. Halla sér aftur í hægindastól og reyna að meta það sem maður hefur og átta sig á því hverju maður sækist eftir. Mér hefur kannski ekki tekist að taka mér frá tíma í þetta, en ég hef samt nokkuð góða hugmynd um hvað ég hef og hvað mig langar í (hljóma eins og krakki sem á afmæli bráðum. 1sta febrúar til að vera nákvæmur). Hér á eftir kemur afmælisóskalistinn minn fyrir nýtt ár:
Ferðalag með Júlíu
Fyrsta frumsamda tónverkið
Heilbrigðari líkami
Skilningur á fjármálum/hagfræði
Meira samband við vini
Eigið húsnæði
Þetta er svo sem alls ekki tæmandi listi, svo ef ykkur vantar fleiri hugmyndir að gjöfum, hafið bara samband og ég skal henda inn fleiri atriðum eins og heimsfriði.
Hvað sem öðru líður voru jól og áramót með besta móti. Eiginlega frábær. Ég á eftir að muna eftir þeim lengi. Ég kenni ákveðinni manneskju um það :)
Á aðfangadag var ég með fjölskyldunni, jóladag með hinni fjölskyldunni (mömmu og systrum Júlíu) og á annan í jólum aftur í Mosó. Um kvöldið var svo djamm á Hótel Sögu (sem varð mjög eftirminnilegt ball... er með brunasár til minningar meðal annars). Þriðjudagur og miðvikudagur fóru í að sofa út og fara í spilaboð. Spilaði fullt á þriðjudegi heima með vinum mínum og Júlíu, og á miðvikudag fórum við til vinkonu Júlíu að spila. Ég komst að því sem ég vissi, að ég er ansi klár í spilum. Meðspilarar mínir standa sig bara oft ekki ;). Fimmtudagur fór í vinnu og House, og föstudagur í jólaboð hjá föðurfjölskyldur Júlíu. Gamlárskvöld í Mosó og áramót með þeirri sem ég vildi allra helst deila áramótunum með. Nýja árinu var fagnað með Júlíu, Víði og Berglind (og fleirum vel völdum) í góðu yfirlæti við spil.
Ég veit ekki af hverju ég var að lista þetta svona. Mér finnst þetta hafa verið meiriháttar jól og ég vildi kannski bara skrá þau niður til að muna þau.
Hafið það gott á nýju ári. Sé ykkur vonandi öll oft!!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli