þriðjudagur, janúar 31, 2006

Fowler í guða tölu

Sjaldan tala ég mikið um fótbolta hérna, þar sem ég veit að alls ekki allir vinir mínir og ættingjar eru fótboltaáhugamenn/konur. Hins vegar finnst mér svo gaman að fótbolta, og þetta er nú eftir allt saman síða þar sem ég blaðra um það sem MÉR finnst skemmtilegt, þá var ég að hugsa um að spjalla um Robbie Fowler (við sjálfan mig, nema þið commentið). Fyrir ykkur antisportista, engar áhyggjur, ég tala um aðra hluti sem eru að gerast í lífi mínu á eftir þessu... þið getið bara hoppað yfir þetta :)

Robbie hefur löngum verið hátt metin í Liverpoolborg, og það má örugglega kenna brotthvarfi hans um að Houllier var látin fara á þeim tímapunkti sem það gerðist. Og kannski smá kókaínsniffi á hliðarlínunum. Það er engin tilviljun að hann var (og er) kallaður "Guð" á Merseyside. Þegar hann hvarf á brott var náttúrulega mikil sorg, þrátt fyrir að hann hafi augljóslega ekki haldið þeim dampi sem þarf til að gera það gott í úrvalsdeildinni í dag. Hann hefur hins vegar alltaf verið í uppáhaldi þrátt fyrir þetta hjá stuðningsmönnum Liverpool (ég innifalin í því) aðallega vegna þess að hann er svo harður púlari sjálfur. Svo skorar hann rosaleg mörk þegar hann er í formi. Það kom samt mörgum á óvart þegar hann var fengin aftur til félagsins núna um daginn. Hann er í kringum þrítugt og hefur ekki sýnt sitt fyrra form hjá öðrum klúbbum. Hann grét samt víst af gleði þegar honum var boðið að koma aftur, og Liverpool borgar ekkert fyrir hann, svo hvers vegna ekki? Í versta falli er hann móral booster, í besta falli skorar hann 10 mörk fyrir lok tímabilsins og sýnir þessum frökkum og spánverjum í sókninni hvernig á að gera þetta. Læt fylgja með mynd af æfingu liðsins þar sem Robbie var með... "who's trying to get into his pants" er allt sem ég segi!!!

Bara að tékka!

Að öðru. Helgin var fín! Ég er byrjaður á æfingum með blásarasveit Reykjavíkur og það eru margar æfingar á stuttum tíma. Föstudagurinn fór í æfingu og kósí kvöld með Júlíu. Laugardagur fór í æfingar og spil í brúðkaupi, þar sem ég komst að því að brúðgumin bað brúðarinnar víst úti á umferðarey á miðri sæbrautinni. Mjög rómantískur staður það. Þorrablót hjá fjölskyldurnni og svo pössuðum við hjá Erlu, systur Júlíu fram á sunnudag. Meiri æfingar, heimsókn í mosó, rólegheit. Í gær var svo 6 mánaða afmæli okkar Júlíu. Já, við erum búin að vera saman í 6 mánuði. Loved every minute of it. Júlía sá um að skipuleggja daginn. Byrjuðum á salalaug, sundlauginni sem átti stóran þátt í "okkur". Við rifjuðum auðvitað upp ýmislegt... hvernig við kynntumst og annað... og mér fannst tilvalið að fara niður á hnéð og biðja hana um að vera með mér í alla vega einn mánuð í viðbót! Hún fríkaði náttúrulega út í eina sekúndu, hélt ég ætlaði að biðja hennar. Veit ekki hvernig hún fékk þá hugmynd í hausinn *stríðnisglott*. Kannski var þetta pínu nastý hjá mér, en við hlógum alla vega hrikalega mikið ;). Svo borðuðum við mat á "staðnum okkar" og enduðum í öskjuhlíðinni þar sem upphaf "okkar" var. Frábært kvöld.

Nóg að gera framundan. Ég á víst afmæli á morgun. Æfing í kvöld og næstu helgi. Tónleikar á sunnudag í langholtskirkju klukkan 8! Svo er Júlía að fara að djamma á laugardagskvöld og ég fæ ekki að fara með, svo ég auglýsi hér með eftir einhverju skemmtilegu að gera!!! Offers please!!!!

Jæja... takk fyrir mig og verði ykkur að góðu! Látið nú í ykkur heyra meira! Langar endilega að fá símtal frá ykkur á afmælisdaginn ef þið mögulega getið :). Grazie ed arrivederci! (er að fara til Ítalíu á árinu með Júlíu!)

Engin ummæli: