mánudagur, október 17, 2005

Kærastan mín


Hæ öll

Mig langar að kynna fyrir ykkur stelpuna sem ég er ástfangin af... allir, Júlía. Júlía, allir :)

Við hittumst fyrst fyrir mörgum árum þegar Víðir vinur minn féll fyrir vinkonu hennar. Við sáumst bara en töluðum aldrei saman. Svo hittumst við fyrir tveim jólum síðar og töluðum varla saman þá heldur. Síðustu jól hitti ég hana svo og eitthvað gerðist. Svo varð ég pínu hræddur en Júlía ekki. Svo hætti ég hræðslunni og er fallin fyrir ljóshærðu brosmildu stelpunni.

-------------------------------------------

Það er svo margt annað að gerast að ég veit ekki hvar ég á að byrja. Eiginlega langar mig ekki að byrja. Er of upptekin að horfa á myndina af Júlíu. Leyfi henni að njóta sviðsljóssins og segi ykkur meira af mér síðar :)

Engin ummæli: