fimmtudagur, október 27, 2005

!"#"$!#% jólin!!!!

Já.... þá gerðist það. Ég vaknaði í morgun, við hliðina á sætustu stelpu í heimi*, og var glaður. Þegar ég svo steig út fyrir hússins dyr var bíllinn hélaður og andardrátturinn framkallaði ský af frosnum vatnsögnum. Það var jólalegt. Og ég sem var búin að tala svo mikið um hvað það er gott að ég hef ekkert hugsað um jólin! Kannski talaði ég OF mikið um það. Það er ekki hollt að hugsa of mikið um jólin svona snemma, sama hver ástæðan er!!! Svo þarna stend ég í morgun, hugsandi hvað Christmas Vacation er nú mikil snilldar jólamynd, og komst að því að mig langar eitthvert þar sem snjór er fyrir jólin! Ef það er ekki snjór á Íslandi þá langar mig til evrópulands eða bandaríkjanna þar sem er snjór! Vancouver? Vermont? St. Pétursborg? Veit ekki. Væri til í að fara í snjóparadís bara til að versla og njóta þess að vera til. En þetta eru bara hugarórar sem sýna að ég er fallin í jólagryfjuna. Jólagrílan hefur náð mér og ég er farin að hlakka aðeins til *andvarp*. Langar bara að láta ykkur vita að mig langar í iPod í jólagjöf *glott*.

Annað er gott. Sá Doom í gær með comrad Víði. Ágætis vitleysa. Blóð, macho SWAT team, bandarískur boðskapur og fullt af staðreyndavillum (eða kannski meira kjánalegri framvindu). Stundum er maður bara í stuði fyrir svoleiðis.

Meira síðar.

* og fyrir ykkur klígjugjörnu (nefni engin nöfn) þá er þetta bara lífs-staðreynd. Manni finnst alltaf sú sem maður er skotin í sætasta stelpa í heimi!

Engin ummæli: