Já... þá er hún að koma. Helgin sem setur vegakerfið á hnén. Helgin sem gefur af sér metfjölda nauðganna. Helgin sem er algerlega einstök. Ég held ég ætli að fara alveg rétt í hana. Ég ætla að byrja á föstudaginn á því að fara í litla útilegu. Ég og 3 vinir mínir ætlum út í óbyggðir (eða réttara sagt á næsta tjaldsvæði með klósettaðstöðu og bar) og ætlum að tjalda. Við erum fúl að hafa ekki komist í tjald (nema Víðir, hann er glaður) og ætlum að kæra okkur kollótt um óhentuglega tímasetningu. Við ætlum ekki að lenda á djammi með fullt af öðrum verslunarmannahelgarförum, heldur skemmta okkur sjálfum í kósí stemningu í gróðurvin ekki of langt frá höfuðborgarsvæðinu. Svo ætla ég að hafa það notalegt þessa helgi. Koma aftur í bæinn á laugardeginu og slappa af.
Og ég ætla að biðja alla um að kalla mig Rúdolph í dag. Ég brann síðustu helgi í sólinni og er ennþá með rautt nef!! Hvað er eðlilegt að nefið sé rautt lengi???
Ég sá bíl með skemmtilega númeraplötu í dag. Það var jeppi, og á plötunni stóð "Aðgát". Ef ég ætti að eyða 30 þús kalli í sérstaka númeraplötu (eða hvað sem það kostar) þá myndi ég einmitt reyna að nota hana í góðan boðskap eins og þennan. Eða "bruðl", eins og Atli vinur minn ætlar að fá sér einhvern tíman þegar hann verður ríkari en hann er. Alla vega fannst mér þessi "Aðgát" númeraplata svo sniðug, að ég keyrði næstum á, glápandi á einhverja númeraplötu á öðrum bíl.
Hrafnhildur, þetta klikkaði illa!!! Ég sem ætlaði svoleiðis að koma að heimsækja þig, og var búin að segja ÖLLUM að ég ætlaði að kíkja á þig á miðvikudag... og að sjálfsögðu lenti ég í ævintýri sem ég segi þér seinna frá. Hafðu það rosalega gott úti, og ég hlakka til að sjá þig í desember!
Ykkar einlægur
Engin ummæli:
Skrifa ummæli