þriðjudagur, júlí 19, 2005

Kvörtun

Mig langar að kvarta. Ég kvarta ekki oft og hef venjulega ekki svo mikla ástæðu til að kvarta. Í nótt hafði ég ágæta ástæðu. Ég var að fara heim úr vinnunni klukkan 3 í nótt (já, þetta er erfið vinna sem ég er í) og hlakkaði mikið til að komast í rúmið. Þegar ég kom undir brúnna upp við afleggjarann inn í Grafarholtið á Vesturlandsvegi, þar sem vinna við tvöföldunina er á fullu, var búið að raða upp nokkrum keilum, og setja upp lítið skillti sem sagði "vegur lokaður". Gaman. Þjóðvegur númer eitt og eina leiðin útúr bænum var lokuð. Engin tilkynning (nema á mbl.is heyrði ég) og alls ekkert um þetta að finna á vefsíðunni þeirra. Ekki einu sinni skillti niður við gatnamót Suðurlandsvegar og Vesturlandsvegar að segja að Vesturlandsvegur væri lokaðu við brúnna. Ekkert. Nada. Zip. Ég þurfti að keyra alla leið niðureftir (ég og margir aðrir bílar) og fara Hafravatnsleið. Sem er ekkert agalegt. Bara sýnir hversu algerlega vonlausir vegagerðamenn virðast vera við að merkja svona framkvæmdir. Jú, vinnan fór fram um miðja nótt, en það var samt umferð, sem auðvellt er að hjálpa með einu skillti sem segir frá lokuninni og beinir umferð um Hafravatn. Svo er þetta stöðugt svona útum allann bæ. Ég og margir aðrið lentu í veseni á Suðurlandsbraut um daginn. Hrikalegar merkingar. Og merkingarnar á tvöfölduninni á Vesturlandsveg get ekki talist góðar. Ekki einu sinni í lagi. Þær eru ekki til staðar.

Jæja... búin að kvarta. Lífið er gott. Ég vinn og vinn. Ég hitti Hrafnhildi frænku sem er glöð og sælleg. Við ætlum með í fjölskylduferð í Skáleyjar um helgina og ég hlakka til. Fyrir þá sem ekki vita þá er Skáley á Breiðafirði og hefur víst eitthvað að gera með ættarsöguna. Best að tala við mömmu áður en ég geri mig að fífli við ættingjana með því að koma í ferð og vita ekki baun um hana. Passar reyndar ágætlega við endurnýjaðan áhuga á því hvaðan ég kem (hjálpar mér kannski að vita hvert ég er að fara).

Hana nú. Peter Crouch komin til Liverpool. Þá held ég að Michael Owen væri betri! Megi hann sanna að ég hafi rangt fyrir mér!

Engin ummæli: