Mánudagur. Rigning. Kuldi. Íslenskt veður má segja.
Tónleikarnir á föstudag (Konsertstuck með RSNO) voru skemmtilegir. Fórum 5 saman og höfðum mjög gaman af. Hitti Christy og Drew í fyrst skipti í svolítin tíma. Þau eru farin að leita sér að húsi núna til að kaupa. Sama gildir um Catriona, konuna sem er með mér í hóp hérna í vinnunni. Og þau segja mér að það sé algjör martröð að kaupa hús eða íbúð núna. Fasteignir eru að seljast á allt að 40% yfir verðinu. Gerir fólki náttúrulega erfitt fyrir þegar það ætlar að plana fjármálin og er ekki viss hvað það þarf að borga fyrirfram með reiðufé eða hvað það fær fyrir eignirnar sem það á þegar. Enn og aftur finnst mér þetta frekar langt í burtu fyrir mig. Ég þarf að vaxa ennþá meira úr grasi. Kannski hætti ég aldrei að vaxa.
Líður ágætlega í vinnunni. Sakna Heidi eðlilega. Það er frekar tómlegt hérna án hennar.
Átti annars rólega helgi. Kvaddi Heidi á laugardag og eyddi gærdeginum í að spila á hlóðfærið og spila fótbollta við sjálfan mig úti á túni. Stórskemmtilegt það.
Fékk boðskort í brúðkaup á föstudag. Nú fyrst maður veit fyrir víst að manni er boðið þá get ég farið að panta mér flugmiða *glott*. Hlakka mikið til!
Langar að benda ykkur á að kíkja á http://www.mozilla.org/products/firefox/. Þetta er ókeypis vefvafrari sem mér finnst betri en internet explorer, og er það í fyrst skipti sem ég finn slíkan vafra, og hafa þeir verið margir og misjafnir í gegnum tíðina!
Góðar stundir
Engin ummæli:
Skrifa ummæli