föstudagur, apríl 30, 2004

Hæ hó.

Hvert fór vikan? Ég get ekki sagt að ég sakni hennar beint... en fyrst vikan flaug svona hratt framhjá, hvernig verður helgin þá??? Og fyrst að vikan flaug framhjá er lítið sem hægt er að segja um hana. Kannski er þetta ágætt þar sem það styttist í heimsókn mína á frón. Já gott fólk, ég ætla í heimsókn í Mosfellsbæinn litla til að vera viðstaddur hinn mikla viðburð þegar systir mín útskrifast úr menntaskóla (og já Hanna Rut líka). Reyndar ráða langtum eigingjarnari tilfinningar þessari heimsókn líka. Mig langar heim í smá stund. Já, ég get sagt að mér líði vel hér í Skotlandi í augnablikinu, en oh hvað ég á það til að sakna Íslands!! Þannig að ég kem 21. maí, og fer aftur 30. maí. 9 dagar. Lovely. Endilega látið heyra í ykkur ef ég hef ekki samband.

Af einhverri ástæðu er ég æstur í að lesa meira og meira um tölvur og grafík þessa daganna, svo það verður líklega það sem ég verð að gera um helgina. Reyndar hefjast hljómsveitaræfingar á þriðjudag, svo hornið tekur svolítin tíma núna líka.

Er frekar tómur núna. Það er gott að hugsa ekki mikið stundum.

Góða helgi öll!

Engin ummæli: