Jæja. Tónleikarnir búnir. Heidi farin :(. Ég sakna hennar.
Ég er samt svolltið ánægður með tónleikanna. Ég spilaði lítið síðustu 2 vikur, og þolið var gjörsamlega horfið. Við vorum að spila Myndir á sýningu eftir Mussourgsky. Ég spilaði fyrsta horn. Ógnvænlegt. Við áttum að spila Stravinsky líka en það klikkaði. Dundee sinfóníuhljómsveitin á í mikilli manneklu þessa daganna. Það vantaði svo marga að ég var orðin ansi leiður á að mæta á æfingar. Þessir tónleikar voru samt frábær afsökun til að fá Heidi til Dundee. Hún spilaði með, því okkur vantaði horn, og fékk borgaða ferðina til Dundee. Ekki slæmt! Hún hitti nokkra af mínum "tónlistarvinum" og líkaði vel held ég. Við eyddum einum deginum í að kaupa jólagjafir handa hvort öðru, en vorum svo allt of upptekin til að pakka þeim inn, svo nú veit ég ekki hvernig ég á að koma gjöfinni frá henni undir tréð án þess að sjá hvað það er! Verð víst að biðja um hjálp frá fjölskyldumeðlimum *glott*. Allt í allt góð helgi! Heidi fer heim til Noregs eftir viku... en ég kem ekki heim fyrr en 18. des. Er búin að vera að fylgjast með vefmyndavél sem sýnir Reykjavík, og hef tekið eftir því að það er föl yfir öllu, og ég var orðin vongóður að ég fengi kannski hvít jól. Óóóó nei. Það er spáð rigningu og hita alla næstu viku *hmpfff*. Mér er svo sem sama. Ég hlakka til að hitta alla og njóta Íslands!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli