Hæ gott fólk.
Þvílíkt hvað flensa getur gert. Ég er búin að vera rúmliggjandi í viku! Komin á fætur loksins, og hlakka til að byrja að vinna aftur. Kannski hlakka ég meira til að fá Heidi í heimsókn um miðja vikuna! Alla vega er ég fullur tilhlökkunar. Jólaskapið virðist vera að koma... alltof snemma eins og venjulega... og ég er farin að skipuleggja margt og mikið að gera um jólin. Ég get varla hamið mig! Allir heitu pottarnir sem þurfa mína athygli, allar lélegu vídeóspólurnar sem ég þarf að glápa á með Víði vini, allir frábæru vinirnir sem ég þarf svo mikið að hitta!!
Í gær féll enn annar félaganna í valinn. Atli Steinn Davíðsson, minn góðkunningi úr TVÍ forðum sló 2 flugur í einu höggi í gær. Hann gekk í það heilaga með Sigrúnu sinni og lét skíra nýfæddan son sinn. Vá. Ég er laaaaangt á eftir. :) Það er ekki annað hægt en að vera ótrúlega yfir sig ánægður fyrir þeirra hönd! Til hamingju! :)
Annars er ég of þreyttur til að skrifa meira. Einhvern vegin hefur þessi pest ekki sleppt mér ennþá, og ég er þreyttur og dasaður! Vona að ég nái að hrista þetta af mér fyrir jól :)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli