Ég get ekki gert tvennt í einu!! Mér er það bara ómögulegt! Ég á skýra minningu af ömmu minni, standandi í forstofunni í Rauðagerði, talandi við 2 systur sínar í einu. Þær voru allar að tala um sinn hvorn hlutinn en náðu líka að svara hvor annarri og halda þræði. Magnað að sjá. Ég, hins vegar, get ekki talað við 2 í einu. Ég get ekki talað í síma og skrifað blogg á sama tíma. Ég gerðist meira að segja svo slæmur núna rétt áðan að vera að tala í GSM síma, og ræstitæknirinn var að skúra gólfið hérna hjá okkur í vinnunni, og hún benti mér að lyfta fótunum svo hún gæti skúrað. Ég gat ekki fyrir mitt litla líf haldið einbeitingunni í símtalinu OG lyft fótunum á sama tíma. Grey tryggingasölumaðurinn (hélt aldrei að þessu tvö orð kæmu saman hjá mér í setningu) skildi ekkert af hverju ég gat ekki svarað einföldustu spurningum. Mér fannst kjánalegt að biðja hann um að bíða á meðan ég lyfti löppunum.
Annars er allt að smella saman við íbúðarkaupin. Bara nokkrar ferðir í bankann í viðbót og við "eignumst" íbúð :). Hún lítur svona út:

... séð ofan frá :)
Meira um hana síðar.
4 ummæli:
Hvar er hún staðsett?? Íbúðin það er að segja?
haha! Týpískur karlmaður er það ekki
Ég er fullkomlega sátt við íbúðarkaupin :)
Svo ég svari fyrir bróðir minn þá er íbúðin í nýja hverfinu í Mosfellsbænum.
Hérna, er möguleiki að halda flugbrautinni fram að jólum. Ef ekki sendu mér mynd.
Skrifa ummæli