miðvikudagur, maí 16, 2007

Nördaháttur


Það er ekki laust við að ég hafi nokkra þekkingu á hugtakinu "nörd". Ég hef sjálfur nokkrum sinnum verið kallaður nörd, áður fyrr í niðrandi merkingu, en í seinni tíð sem vel meint, hlýlegt og góðlátlegt grín. Ég býst við að stundum bjóði ég upp á það að að mér sé gert þetta góðlátlega grín. Ég er meira að segja stoltur af því að vera kallaður nörd. Það þýðir að ég hef brennandi áhuga á einhverju. Og já, ég les tölvubækur í rúminu á kvöldin áður en ég fer að sofa. Mér finnst skemmtilegra að lesa um sögu Commodore 64 tölvunnar en að lesa flugdrekahlauparann. Ekki það að mér finnist ekki gaman að lesa skáldsögur. Mér finnst það mjög skemmtilegt... en mér finnst bara skemmtilegra að lesa um sögu tölvunnar. Og bara sögu tölvunnar. Ekki um sögu Grikkja, eða sögu Sovétríkjanna... eða einhverja aðra sögu.
Og ég þori að fullyrða að ALLIR... sama hversu djúpt leynist á því... eigi sér nördaskap. Einhverjir safna postulínsstyttum af fílum, einhverjum finnst hrikalega gaman að horfa á Guiding Light, öðrum finnst ótrúlega gaman að telja skrefin frá einum stað til annars. Þetta er allt nördaskapur. Og ég fagna þeirri þróun sem hefur orðið undanfarið að orðið nörd er ekki jafn neikvætt og það var. Eftir að tölvunördar fóru að græða pening varð ekki alveg jafn niðrandi að kalla einhvern nörd :)

3 ummæli:

Freyr sagði...

Húrra fyrir nörda. Ég er nörd á svo mörgum levelum. Það gerir lífið skemmtilegra.

Hrafnhildur sagði...

Ég hef t.d. ótrúlega gaman af að nördast í beðinu mínu og ég er algjör krossgátunörd. Við skulum bara viðurkenna að nördaháttur er það sem gefur lífinu gildi:)

Nafnlaus sagði...

ég er ekki frá því að ég hafi alloft staðið mig að því að telja hversu oft ég labba 100 skref á leið um bæinn hí, hí, hí.... ;)
ég er semsagt svona skrefa nörd, og örugglega leynast fleiri nörda hæfileikar hjá mér...