mánudagur, september 11, 2006

Jarm


Já, ég var í réttum um helgina. Hún undurfríða og allra mann hugljúfi hún Birna bauð mér og sætustu stelpu í alheiminum að elta rollur upp um holt og hæðir Strandamanna um helgina. Sannanlega var ég ekki viss um að mér tækist vel að sannfæra hið þrjóska dýr sem kindin er að fara í þá átt sem ég vildi. Sem betur fer var ég ekki einn í þessu, heldur reyndist vera gott samansafn af staðarfólki og gestum þeirra með í för. Öllu var svo stjórnað fastri hendi af reyndum bóndum sem virtust geta hlaupið miklu hraðar en nokkur rolla án þess að þreytast hætis hót. Þó þeir væru með 3falt stærri bumbu en ég. Sveitalífið gerir manni greinilega gott. Þó svo að veðrið léki ekki beint við okkur (rok og rigning mestan tíman) var bara ekki annað hægt en að heillast af hrikalegum fjöllum og tilkomumiklum dölum baðaðan í mystísku ljósi sólar sem annað veifið gægðist fram undan rigningarskýjunum. Með öðrum orðum var þetta dúndur ferð, og langar mig að þakka Birnu og hennar fólki fyrir mikla gestrisni!!

Annað er gott. Loksins er tónlistarfólkið að taka við sér og ég er bókaður á tónleika. Um að gera að fara að æfa sig almennilega! Júlía er á fullu í skólanum og vinnunni og það er ekki laust við að maður sakni hennar svona fyrri part viku. Ég er sjálfur ánægður í vinnunni, en það er ekki laust við að ég sé farin að skoða naflann minn aðeins og velta fyrir mér lífinu og tilverunni. Það blundar ýmislegt í mér sem passar ekki beint við vísutöluíslendinginn. Þetta eru allt bara hugrenningar og draumar, en stundum spyr maður sjálfan sig hvers vegna maður grípur ekki lífið fastari tökum og gerir eitthvað við það frekar en að sitja og horfa á það sigla framhjá. Kallið það miðlífskrísu ef þið viljið :). Gerist reyndar alltaf einu sinni á ári, svipað og réttirnar ;)

Jæja... sakna fullt af fólki og mun hafa samband við ykkur öll um leið og ég get!!! Njótið dagsins, vikunnar og mánaðarins.

Engin ummæli: