föstudagur, maí 26, 2006

Hundalíf


Það hvarflaði að mér í gær að við erum ekki svo ólíkir ég og Grímur (ættleiddi hundurinn minn, Júlía er húsbóndinn). Þegar Júlía fór til Madeira um daginn brýndi hún fyrir mér að Grímur mætti nú alls ekki vera einn heima í meira en 8 tíma í senn. Þessu hafði ég kannski ekki alveg áttað mig á þar sem í Hálsaseli er ansi oft einhver heima til að njóta félagsskapar Gríms. Aase vinnur vaktavinnu og ansi oft er annað hvort ég eða Júlía heima. Eða þá jafnvel Steinunn. En núna eru þær allar saman í burtu og ég hef núna miklar áhyggjur af því hvort Grímur fái félagsskap. En sjáiði til, Júlía gleymdi að brýna fyrir mér að ég mætti sjálfur ekki vera meira en 8 tíma samfleytt einn heima í Hálsaseli!!! Ég hef nefnilega aldrei verið góður í einveru. Ég þarfnast félagsskapar, og ég verð ótrúlega niðurdregin ef ég umgengst engan í svolítin tíma. Það er eiginlega dálítið furðulegt! Þegar ég leigði einn úti í Skotlandi entist ég í 3 mánuði. Og hvað mér leiddist rosalega!!! Kannski er þetta af því að ég hef alltaf haft mikið af fólki í kringum mig...

Annars sakna ég Júlíu mjög sárt! Vissi ekki að þetta yrði svona erfitt *andvarp*. Ég vil helst fá hana heim strax!!!! Vona samt að þau njóti öll ferðarinnar til Madeira og að ég sé ekki að skemma neitt með því að senda fullt af SMS-um með söknuði til Júlíu :)

Jæja... farin í útskriftarveislu hjá Daða og svo á óperuæfingar sem eru núna á hverju kvöldi og allar helgar!!! Góða helgi, og ekki gleyma að kjósa!!!!

ykkar einlægur.

Engin ummæli: