miðvikudagur, febrúar 15, 2006

Litir


Hvaða bjána datt í hug að nota græna og rauða litinn til að tákna hættu og öryggi? Ekki það að þetta séu ekki fínir litir til þess. Rautt er oft tákn fyrir heitt (eld) og okkur er kennt frá blautu barnsbeini að forðast eldinn. Grænt er róandi litur (gras) og vekur öryggiskennd. Hins vegar er lang lang algengasta litblindan á rautt og grænt! Ætli þetta hafi alltaf verið þannig eða ætli þetta sé þróun mannsins EFTIR að umferðarljós komu til sögunnar? Er þetta Darwin in action? Og af hverju komast þeir betur af sem sjá ekki hvort það er grænt ljós eða rautt? Hmmm....

Annars er best að leiðrétta misskilning. Greyið Júlía stendur í því að vinir og ættingjar eru að spyrja hana hvað það sé sem hún sé að segja við mig sem fær mig til að hugsa um að vera "klingy" og sambönd almennt! Þannig vill til að þetta hafði varla neitt með Júlíu að gera (nema náttúrulega það að við erum í sambandi og maður ber sjálfan sig náttúrulega saman við annað fólk í samböndum). Júlía sagði bara eitthvað sem minnti mig á annað samtal sem fjallaði um sambönd... látiði nú stúlkuna í friði *stríðnisglott*

Annars vil ég bara votta Arsenalmönnum samúð mína... nei annars!!! Ég held ég geri það bara ekki!! Liverpool voru miklu betri, og unnu þrátt fyrir að geta varla komið tuðrunni í markið!!! Annað hvort eru Liverpoolmenn betri en ég átti von á eða Arsenal sökkaði ansi mikið... you choose :)

Helgin að koma... heilmikið að gerast held ég. Langt síðan ég hef átt helgi þar sem ekkert gerist. Hlakka til að fá þannig helgi!!! (Letihelgi)

Ykkar einlægur.

Engin ummæli: