Það er næstum allt slökkt hérna í vinnunni. Klukkan er 20 mín yfir 10 og það eru 5 mættir í vinnuna. Engin af okkur þorði að kveikja ljósin þar sem það gæti fælt einhvern tölvuhugsuðinn sem var kannski um það bil að uppgötva gátuna um lífið og alheiminn í einu algrími fyrir PC tölvuna sína. Við 5 erum ekki vanir að kveikja ljósin. Hver ætli geri það á hverjum morgni? Ekki við. Núna eru hinir 20 starfsmennirnir þunnir. Þeir eru í Póllandi í boði fyrirtækisins að njóta lífsins. Njóta ódýra bjórsins, ódýru útimarkaðanna, ódýru tónleikanna, klúbbanna, hótelanna... og rándýru merkjavörunnar. Hún kostar nefnilega það sama alls staðar.
Við erum kannski 7 sem ætlum í seinni ferðina (þær eru 2) ásamt hinum dótturfyrirtækjum TM Software. Það verður stuð. Eða þannig. Þetta verður skrítið. Þetta á að þjappa hópnum, en allir hinir munu hafa skemmtilegar sögur að tala um frá Póllandi, og við hinir 7 (allir nýliðarnir) verðum undir í baráttunni í sögustundinni í matartímanum. Alveg sama þótt það verði miklu skemmtilegra hjá okkur!!
Núna er sumarið loksins búið. Ég held það klárist á morgun eftir brúðkaupið sem ég fer í (Andrés og Helga). Brúðkaup eru venjulega á sumrin, svo þetta brúðkaup lengir sumarið pínulítið. Kær þökk fyrir það. Ég sá nefnilega eitt risastórt algult tré í gær. Eitt sem tók forskot á sælunna. Langaði að geta ullað á hin trén og sagst vera flottari en þau.
Jæja... datt bara að skrifa blog eftir langt hlé... er svolítið mellow núna. Ekki svartsýnn, ekki endilega bjartsýnn heldur í dag. Skrítin tilfinning. Lifið heil.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli