Er að verða netsjúkur! Get ekki hætt að sitja með nýju tölvuna mína í kjöltunni og skoða netið! Ef það er ekki spjall eða blog-lestur þá er það vefverslanavafr (gott orð, íslenska er frábær!) eða fótbolltavefsíður. Hér sit ég í hreint frábæru veðri inni í stofu og skrifa blog. Ég ætti að gera svo margt annað. Lesa mér til fróðleiks, fara út í sund, fara út að skokka í góða veðrinu, versla mér föt (sem ég þarf nauðsynlega að gera). Er reyndar búin að ákveða að næst þegar verður rigning úti á laugardegi og ég hef ekkert að gera þá ætla ég að fara að versla mér föt. Málið er að kannski koma þessar aðstæður ekkert upp í sumar *lol*. Sjáum til.
Finn tilvistarkreppu læðast upp að mér. Fæ svoleiðis reglulega og nýt þess í botn að efast um sjálfan mig og tilverunna. Þýðir ekkert annað en að verða heimsspekilegur reyna að njóta kreppunnar. Spyr þá iðulega um tilgang lífsins og hvort ástin sé til. Spyr hvers vegna ég hef það gott og aðrir ekki, og hvers vegna mér líður ekki betur með að hafa það svona gott *lol*. Allt mjög uppörvandi og skemmtilegar pælingar *ahem*.
Svo hætti ég skyndilega að hugsa um slíkt og fer að hugsa um hvort ég geti ekki fengið grillmat í kvöld, og þá veit ég að tilvistarkreppan er búin. Hún stóð kannskí bara í 10 mínútur, en ég veit hún kemur aftur einhvern tíman. :) Hlakka bara til.
Farið út... njótið sólarinnar (ef það er sól) og hættið að lesa bloggið mitt! Lífið er of stutt :)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli