sunnudagur, maí 01, 2005

Ekki hættur enn!

Hélduð þið að ég væri alveg hættur að blogga hérna? Bara af því að ég er komin heim? Ég íhugaði það reyndar, og kannski blogga ég ekki jafn oft, en það er allt í lagi, því ef ykkur langar að vita hvað ég er að gera er núna hægt að kíkja á útttlenska bloggið mitt á www.mrdontlarge.blogspot.com
Þar ætla ég að segja af mér sögur til að skemmta vinum mínum erlendis. Ég veit ekkert hvort þá langar að vita af mér, en ég skrifa samt. Og kannski ég reyni að halda áfram hérna.
Annars er allt gott að frétta. Ég er ennþá að reyna að finna mig, enda bara 3 vikur síðan ég kom heim. Tímin líður hratt samt, svo áður en ég veit af verða komin jól. Annars finnst mér ég ekki hafa hugsað neitt merkilegt síðan ég kom til landsins. Ég veit ekki hvort þetta er Íslandi að kenna eða bara mér. Kemur í ljós :). Alla vega virðist ég ekki hafa neitt að segja. Sýni ykkur þá bara mynd af nýja bílnum mínum :). Megi þið öll verða græn af öfund!!! :)

My new car

Meira seinna :)

Engin ummæli: