Jæja... komin aftur úr sumarfríi. Sannfærði sjálfan mig um að engin væri hvort eð er að fylgjast með svo ég gæti alveg tekið frí. Svo byrjuðu nokkrir að kvarta svo ætli það sé ekki best að koma sér af sólarströndinni í huganum inn í raunveruleikann. Kannski er það þess vegna sem hléið kom. Það var orðið of óþægilegt að tala um raunveruleikann... og ekki hefur það batnað síðan *glott*. 5 vikur þangað til ég hætti í vinnunni hérna, og ég er ekki komin með vinnu, og ég veit ekkert hvert ég er að flytja :). Eins og sumir sem þykjast þekkja mig vita, þá þrífst ég best á því að vera viss. Mér finnst gott að plana, en líður ver með óvissu. Jafnvel þótt að ég viti að hlutirnir séu að fara að versna, þá er það betra en að vita ekki neitt *glott*.
Nú, áður en þið haldið að ég sé í einhverju þunglyndi, þá segi ég að það er alls ekki málið. Mér líður hreint ágætlega núna, og er að njóta ansi góðs veðurs hérna í Skotlandi (loksins). Vinnan er að batna og þó það sé ekki mikið um spilamennskur í augnablikinu þá erum við alla vega að æfa saman nokkrir hornleikarar annað veifið og höfum gaman að. Svo hlakka ég mikið til að heimsækja frón eftir ca. 2 vikur og fara í brúðkaup.
Alla vega held ég áfram að sækja um vinnu í London og til vara á mörgum öðrum stöðum, eins og á Íslandi. Óvissan með framhaldið hefur svolítið að gera með Heidi, því hún veit ekki hvort hún verður í Svíþjóð á næsta ári eða í London. Ef hún verður í London þá væri gott að fá vinnu þar, en annars er mér farið að finnast Ísland vera ágætur kostur. Ef ég er ekki að eltast við einhverja spennandi vinnu þá væri ég alveg eins til í að koma heim til Íslands :). Venjulega myndi ég segja að tíminn leiði þetta nú bara í ljós, en nú er tíminn að renna út. Ég þarf að ákveða og fara að skipuleggja flutning. Gaman gaman :)
Svo langar mig að benda á fyrir ykkur fótbolltaáhugamenn að ástæðan fyrir því að Liverpoolmenn eru svona rólegir (bæði á leikmannamarkaðinum og í viðtölum við þjálfarann) er að þeir þurfa ekki kjaftstóran þjálfara til að vinna leiki á næsta tímabili *glott*. Vive Rafael Benitez !!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli