mánudagur, júní 28, 2004

Þvílík fótbolltaveisla. Það er búið að vera frábært að fylgjast með leikjunum í evrópukeppninni, og ég var næstum búin að gleyma hvað það getur verið gaman að horfa á fótbollta! Nú má ekki missa af neinu og ég gekk svo langt að horfa á leikinn milli frænda vorra Dana og Tékka að ég vakti til 2 í nótt að horfa á endursýninguna. Nei, ég sá ekki leikinn fyrr um kvöldið, svo langt er ég ekki gengin *glott*. Annars er því miður bara vika eftir að herlegheitunum. Ég er farin að vona að það verði leikur á milli Tékka og Portúgala í úrslitunu, svona svipað og ég spáði þegar Portúgalar tryggðu sig upp úr riðlinum sínum ásamt Tékkum.
Annars voru tónleikar á laugardag, og þrátt fyrir að vera í góðu formi entist ég ekki alveg 3 tíma æfingu og tónleikana sama daginn. Var orðin þreyttur í lokin, en það var allt í lagi, við hljómuðum ágætlega. Þetta voru líklega síðustu tónleikarnir mínir í Dundee *sniff sniff*. Stjórnandinn hringdi í mig í morgun og þakkaði mér fyrir liðna tíð og óskaði mér góðs gengis. Sagðist ekki búast við að fá svona góða horngrúppu aftur í langa tíð. *mont mont mont*
Fórum á pöbbinn eftirá nokkur saman og höfðum gaman af.
Jæja, veðrið farið að jafna sig hérna. Einhvern vegin tókst mér að missa af forsetakostningunum heima, en það er allt í lagi, því það sama gilti um tæplega 40% Íslendinga. Ég hefði nú líklega verið einn af þeim sem skiluðu auðu :/
Meira síðar :)

Engin ummæli: