Það er föstudagur. Augljóst, en áhugavert. Það er nefnilega svo stutt síðan sá síðasti var.
Síðasti föstudagur færði loforð um spennandi tíma. Það leit út fyrir að ég myndi fara til London að hitta Heidi (og fara á fund með samstarfsfólki) um helgina 20-21 og það á eftir myndi ég fara til San Francisco til að heimsækja fyrirtæki þar og fara á stærstu leikjaráðstefnu í heimi. Þar að auki eru tónleikar hjá mér þessa helgi. Gaman gaman! Svo, á miðvikudag sagði Heidi mér að hún væri að fara til Svíþjóðar að spila með hljómsveit þar helgina 20-21. Æ. Ok... þarf að bíða þangað til 31sta mars til að hitta hana. Svo í gær fékk ég að vita að ég myndi ekki fara til San Francisco. Þar fór það. Hlakkaði til að fara til Bandaríkjanna í fyrsta skipti. Jæja... ég hef alltaf leikjatölvuna mína. Og tölvublöðin mín. Og bíóhúsin fara ekkert langt :(. Svo klúðraði Liverpool fótbolltaleik í gær. Æ. Ég meina, þetta er nú bara fótbollti. Og svo... og svo.... og svo var ungur tölvunarfræðingur á leið í vinnu með lestinni á fimmtudagsmorgun og án nokkurar viðvörunar sprakk vagninn sem hann var í í loft upp. Og kannski dó hann. Ásamt 198 öðrum. Mikið hef ég það gott!!!
Annars er ég orðin spenntur fyrir græjudóti aftur. Ég er búin að vera duglegur að dempa áhugann þar sem ég á engan pening. Og mun ekki eiga í náinni framtíð. Hins vegar finnst mér tækni forvitnileg. Einhvern vegin tekst okkur stöðugt að gera hlutina smærri, ódýrari, hraðvirkari, og ég vellti fyrir mér hvort við getum endalaust bætt okkur? Getum við haldið áfram að fljúga hraðar, reikna hraðar, keyra hraðar? Fyrst við sjáum fyrir þróunina næstu mánuðina, og kannski árin, af hverju getum við ekki hoppað yfir næstu mánuði og komið strax fram með þrefalt hraðvirkari tölvur? Hvers vegna þurfum við að læra meira og meira.. hægt og hægt? Hættum við einhvern tíman að læra? Getum mannskepnan endalaust orðið snjallari? Eða erum við ekkert að verða snjallari, bara reynslumeiri. Erum við bara að byggja á þekkingu? Byggja eitt risastór þekkingarhús? Og klárast byggingin þá einhvern tíman? Er hægt að spyrja 30 spurninga í einni málsgrein? Greinilega.
Ég fæ engin svör við þessu en ég er fegin að ég er að hugsa um þetta en ekki hryllinginn í Madrid.
Góða helgi.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli