föstudagur, febrúar 27, 2004

Lífið flýgur hjá...
Pabbi átti afmæli í gær. Til hamingju pabbi! Og Liverpool gerðu svo vel að vinna glæsilega til að halda upp á afmælið í gærkvöldi. Mikið var gott að sjá það gerast í fyrsta skipti í langan tíma!

Helgin síðasta var góð. Var í London "on business" eða þannig. Átti einhverja fundi í London og Bristol og það gekk alveg ágætlega, nema hvað ég fékk að kenna á samgöngukerfi Lundúnaborgar. Ég hafði ekki alveg trúað því þegar mér var sagt að það væri full tilviljanakennt. Missti næstum því af fundinum. O jæja. Ég veit betur næst.
Gisti náttúrulega hjá Heidi. Fannst það náttúrulega gott, nema hvað kyndingin hjá þeim var ekki að virka, og viti menn, það kom kuldakast! Vei! Gerði margt skemmtilegt með Heidi, fór á nútímahönnunarsafnið í London og langaði á Tate Modern, en komst ekki sökum leti fyrr um daginn. Flaug heim frá City flugvellinum í London beint to Dundee og fílaði það vel. Vildi að ég gæti gert það oftar!

Það er allt of mikið sem mig langar að gera þessa daganna. Er orðin æstur í að forrita utan vinnutíma. Hef venjulega ekki verið það, en eitthvað hefur kveikt í mér áhugann. Svo finnst mér allt í einu óendanlega gaman að æfa mig á hljóðfærið... en hef varla tíma til þess af því að ég hangi í vinnunni fram eftir kvöldi (að leika mér að forrita). Svo eru íþróttirnar alltaf að kalla í mig. Fer alla vega í körfubollta einu sinni í viku og reyni að komast í ræktina annað veifið.

Það snjóar úti núna. Það hefur varla gerst í Dundee áður. *brrrrrrr*

Jæja... tékkiði á þessu í gamni.... http://www7.friendtest.com/viewquiz.php?account=torfig

Ég er farin að hlakka til helgarinnar. Er reyndar á smá heimþrár-trippi... hlustaði á hundleiðinlegan þátt á Rás1 í morgun á netinu. Bara til að heyra smá íslensku.

Hafið það gott fólk...

Engin ummæli: