Átti ágæta helgi. Sá bíómyndir hægri og vinstri. Cold Mountain var frábær. Mæli með henni fyrir alla sem langar að sjá óskarsverðlaunadrama. Cold Mountain fékk hins vegar engin Golden Globe verðlaun sem kom mér satt best að segja á óvart. Ricky Chervais fékk hins vegar verðlaun fyrir "The Office". Það var hægt að sjá á andlitum stjarnanna : "Hver í fjandanum er þetta??" enda hefur eiginlega engin hinum megin við pollinn séð The Office. Sjálfum finnst mér The Office leiðinlegir þættir... en gat ekki annað en fyllst smá stollti yfir afrekum breska kaldhæðnishúmorsins á bandarískri grundu. Kannski ég sé að komast aðeins inn í breska hugsunarháttinn, aldrei að vita. Eitt af hinum mörgu samtölum sem ég átti EKKI við Freysa um jólin var um mismunandi viðhorf til sambands breta og bandaríkjamanna. Kannski eins gott. Hefði getað orðið hálf leiðinlegt samtal *glott*.
The Last Samurai var eðalmynd líka, ef menn geta horft fram hjá "væmnum" tilhneygingum mynda sem langa í óskarsverðlaun. Mjög falleg myndataka og nokkur MJÖG flott bardagaatriði.
Lost in Translation er róleg, innhverf en jafnframt afar fyndin mynd á köflum, þar sem einn af mínum uppáhalds leikurum er í essinu sínu (Bill Murray). Aftur er þar mjög áhugaverð/raunsæ myndataka sem ræður ríkjum og kastar ákveðnum blæ á annars rólega mynd. Ekki búast við kjánahúmor frá Murray... þetta er meira svartur húmor.
Alla vega... ætlaði ekki að vera með kvikmyndagagnríni. Óskarsverðlaunin eru handan við hornið og ég er komin í stemninguna. Pardone moi.
Annars er fullt að gera í tónlist núna. Æfingar 2svar í viku... smá tónleikar á föstudag, ásamt því sem skotar kalla Burns supper seinna um kvöldið. Kannski má líkja Burns supper (sem var víst tæknilega á síðasta sunnudag) við einhvers konar þorrablót. Haggis og annar skoskur matur frá fyrri tíð er borðaður og áfengi er drukkið (viskí að sjálfsögðu) en þar endar samlíkingin. Richard Burns var nefnilega skáld. Alþýðuskáld sem var fólkinu í Skotlandi það sem David Beckham er fólkinu í Englandi... eða þannig :). Ég veit í raun ekki mikið um hann, en ég hef lesið eitt eða tvö ljóð, og þau eru ansi skemmtileg. Ásamt því að drekka og borða stendur sem sagt fólk upp við borðið í gríð og erg og les ljóð eftir Burns eftir ákveðnum venjum. Ég hef líka á tilfinningunni að ég ætti að mæta í skotapilsi!!! Læt það nú kannski vera *glott*. Hlakka til.
Á laugardagsmorgun kemur kærastan svo í heimsókn. Oh, það verður mjööööög gott! Svo eldist ég um enn eitt árið á sunnudag *andvarp*. Þeim sem vilja gefa blóm eða peningagjafir er bent á að senda þau til Liverpool Football Club þar sem þeir þurfa MIKLU meira á því að halda en ég.
Hafið það gott fólk.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli